Vakandi auga með velferð dýra
Dýralæknafélag Íslands er fag- og stéttarfélag dýralækna. Félagið gætir hagsmuna dýralækna í kjara- og réttindamálum, eflir faglega þekkingu stéttarinnar og stendur vörð um velferð dýra.


Hvaða kjör og sjóðir gilda um þig?
Veldu hvar þú starfar og sjáðu gildandi kjarasamning, aðild og þá sjóði BHM sem launagreiðandi greiðir í fyrir þig.
Hvar starfar þú?
Starfar hjá ríkinu
Kjarasamningur DÍ og ríkisins gildir, auk stofnanasamnings þinnar stofnunar.
- Aðild
- Fag- og stéttarfélagsaðild. Félagsgjald er 0,9% af heildarlaunum og BHM sér um innheimtuna.
- Kjarasamningur
- Kjarasamningur DÍ og ríkisins · Nóvember 2024
- Stofnanasamningar
- Sjóðir BHM
- Styrktarsjóður 0,75%
- Orlofssjóður 0,25%
- Starfsmenntunarsjóður 0,22%
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7%
- Næstu skref
- Reikna félagsgjald og sjóði Sækja um aðild
Afstaða DÍ
Félagið tekur afstöðu á opinberum vettvangi fyrir hönd stéttarinnar, með velferð dýra, matvælaöryggi og hag dýralækna að leiðarljósi.

Yfirlýsing DÍ um illa meðferð á hryssum við blóðtöku
DÍ fordæmir þá ómannúðlegu meðferð á hrossum sem kemur fram í myndbandi Evrópskra dýravelferðarsamtaka um blóðmerar hér á landi.
Lesa yfirlýsingunaÁlyktun DÍ vegna umræðu um flatnefja gæludýr
DÍ fagnar umræðu um velferð og heilbrigði flatnefja gæludýra. Hún er nauðsynleg til að ræktendur, eigendur og dýralæknar geti í sameiningu bætt heilbrigði og líðan dýranna.
Ályktun DÍ um bann við lausagöngu katta á Akureyri
DÍ harmar að bæjarstjórn Akureyrar hafi samþykkt bann við lausagöngu katta og telur að með banninu sé vegið að eðlislægu atferli kattarins og velferð hans.
Ályktanir á aðalfundi DÍ 13. mars 2021
Aðalfundur leggur til að hætt verði við áform um sölu á heimaslátruðu kjöti með takmarkaðri aðkomu dýralækna.
Allar ályktanir og yfirlýsingarFréttir og viðburðir
Allar fréttir
Félagsfundur vegna Stofnunar atvinnuveganna
DÍ, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga og Viska boðuðu til sameiginlegs félagsfundar með starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita.

Andleg vanlíðan og streita algeng meðal dýralækna
Könnun DÍ meðal félagsmanna sýnir að álag í starfi hefur aukist. Helmingur svarenda taldi álagið við þolmörk.

Aðalfundur DÍ 13. mars 2021
DÍ boðar til aðalfundar á Teams og í húsnæði Distica í Garðabæ. VÁ-teymi Matvælastofnunar kynnir viðbragðsáætlun vegna alvarlegra dýrasjúkdóma.


Fyrir dýraeigendur
Skylt er að örmerkja alla hunda, ketti og kanínur. Hér finnur þú upplýsingar um örmerki, skyldur eigenda samkvæmt reglugerðum um velferð dýra og hvar dýralækna með starfsleyfi er að finna.
Sex dýralæknar á Hótel Borg
Föstudaginn þ. 7. september 1934 komu dýralæknarnir á Íslandi, en þeir voru sex talsins, saman til fundar á Hótel Borg í Reykjavík til þess að halda með sér dýralæknafund.
Úr fyrstu fundargerð Dýralæknafélags ÍslandsÍ dag eru félagsmenn 156 auk fjórtán eftirlaunaþega. Félagið er eitt af aðildarfélögum BHM og fer með samningsumboð fyrir dýralækna hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum markaði.
Lesa sögunaGanga í félagið
Félagar geta þeir orðið sem lokið hafa háskólaprófi í dýralækningum og fengið starfsleyfi á Íslandi. Félagið lætur útbúa stimpil með læknanúmeri þínu og nafni ásamt merki félagsins.
Sækja um aðildFag- og stéttarfélagsaðild
Fyrir dýralækna sem greiða fag- og stéttarfélagsgjöld til DÍ. Félagið semur um kjör fyrir þína hönd.
Fagfélagsaðild
Fyrir dýralækna sem greiða stéttarfélagsgjöld til annars stéttarfélags vegna starfa sinna.
Aukaaðild
Fyrir nema, dýralækna í framhaldsnámi eða erlendis og þá sem eru ekki í starfi í hálft ár eða lengur. Ekkert iðgjald.
