Fyrir dýraeigendur
Upplýsingar um dýravelferð, örmerkingar gæludýra og hvar dýralækna með starfsleyfi er að finna.

Örmerki og Dýraauðkenni
Á Dýraauðkenni (dyraaudkenni.is) má fletta upp örmerkjum og einstaklingsmerkjum gæludýra. Upplýsingarnar eru aðgengilegar allan sólarhringinn, sem eykur líkurnar á að dýr í vanskilum komist aftur til eigenda sinna.
Í reglugerð um velferð gæludýra er kveðið á um skyldu eigenda til að láta örmerkja alla hunda, ketti og kanínur. Við stofnun grunnsins voru 37.500 dýr skráð í hann og í upphafi árs 2017 höfðu 54.918 dýr verið skráð.
Með innskráningu getur þú
- tilkynnt um týnt dýr,
- sett inn myndir af dýrinu,
- skráð eigendaskipti og bætt við upplýsingum.
Innskráning er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Dýraauðkenni er í eigu Völustalls ehf., einkahlutafélags í eigu Dýralæknafélags Íslands.
Opna Dýraauðkenni

Dýravelferð
Reglugerðir og leiðbeiningar um skyldur eigenda og lágmarkskröfur um aðbúnað dýra.

Velferð gæludýra
Reglugerð nr. 80/2016 um skyldur eigenda gæludýra

Velferð hrossa
Reglugerð nr. 910/2014: lágmarkskröfur um velferð og heilbrigði hrossa

Hvernig líður útiganginum?
Útiganga hrossa og nautgripa

Kynningarbæklingur DÍ
Samband manna og dýra og mikilvægi starfs dýralækna
Á vef Matvælastofnunar eru einnig leiðbeiningar til eigenda dýra vegna flugelda. Sjá vef MAST.
Finna dýralækni
Matvælastofnun heldur uppfærðan lista yfir dýralækna með löggildingu hér á landi. Aðeins dýralæknar með starfsleyfi mega framkvæma læknisaðgerðir á dýrum.
Dýralæknar með starfsleyfiHéraðsdýralæknar
Héraðsdýralæknar Matvælastofnunar eru fjórir, hver með sitt umdæmi.
Afstaða DÍ í velferðarmálum
Allar ályktanir
Yfirlýsing DÍ um illa meðferð á hryssum við blóðtöku
DÍ fordæmir þá ómannúðlegu meðferð á hrossum sem kemur fram í myndbandi Evrópskra dýravelferðarsamtaka um blóðmerar hér á landi.

Ályktun DÍ vegna umræðu um flatnefja gæludýr
DÍ fagnar umræðu um velferð og heilbrigði flatnefja gæludýra. Hún er nauðsynleg til að ræktendur, eigendur og dýralæknar geti í sameiningu bætt heilbrigði og líðan dýranna.

Ályktun DÍ um bann við lausagöngu katta á Akureyri
DÍ harmar að bæjarstjórn Akureyrar hafi samþykkt bann við lausagöngu katta og telur að með banninu sé vegið að eðlislægu atferli kattarins og velferð hans.
