Fyrir launagreiðendur
BHM innheimtir félags- og sjóðagjöld fyrir Dýralæknafélag Íslands. Hér er allt sem þarf til að ganga rétt frá skilagrein.
Hvernig á að ganga frá skilagreinum?
Senda skal skilagrein fyrir hvern launamánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum til stéttarfélaga fyrir hvern launþega, fyrir gjalddaga. Áríðandi er að rétt númer og heiti stéttarfélags komi fram og að útreikningur iðgjalda sé réttur miðað við viðeigandi kjarasamning. BHM óskar eftir að fá allar skilagreinar sendar rafrænt.
Úr launakerfi
- Rafrænt með XML (sjá skilagrein.is) eða með SAL-færslu á skbib@bhm.is.
- Launþegi verður að vera merktur með réttu stéttarfélagsnúmeri, réttum innheimtuaðila (BHM 2999) og gildum færslutegundum.
- Ekki þarf notendanafn eða lykilorð.
Rafrænt skilagreinaform
Sjálfstætt starfandi og smærri fyrirtæki sem skila ekki beint úr launakerfi geta notað rafrænt skilagreinaform BHM. Útreikningur birtist sjálfkrafa og hakað er við þá sjóði sem ekki á að greiða í. Kvittun berst á uppgefið netfang.
Rafrænt skilagreinaformGreiðsluleiðir
- Greiða kröfu sem stofnast í netbanka launagreiðanda þegar skilagrein hefur borist (mælt með).
- Millifæra á bankareikning BHM 0336-26-50000, kt. 630387-2569.
Hafi krafa ekki stofnast getur verið að skilagrein hafi ekki borist eða að launagreiðandi hafi ávallt millifært.
Hvenær á að greiða?
Eindagi er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar; hér er ekki tekið tillit til almennra frídaga. Sé ekki greitt fyrir eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Reikna iðgjöld starfsmanns
Félagsgjald, greiðslur í sjóði BHM og mótframlag í lífeyrissjóð eftir starfsvettvangi.
Félagsgjald DÍ: 8.550 kr. á mánuði
102.600 kr. á ári| Liður | Hlutfall | Á mánuði |
|---|---|---|
| Dregið af launum starfsmanns | ||
| Félagsgjald DÍBHM innheimtir fyrir DÍ0,9% | 0,9% | 8.550 kr. |
| Lífeyrissjóður, iðgjald4% | 4% | 38.000 kr. |
| SéreignarsparnaðurValkvætt4% | 4% | 38.000 kr. |
| Launagreiðandi greiðir til viðbótar | ||
| Styrktarsjóður BHM0,75% | 0,75% | 7.125 kr. |
| Orlofssjóður BHM0,25% | 0,25% | 2.375 kr. |
| Starfsmenntunarsjóður BHM0,22% | 0,22% | 2.090 kr. |
| Starfsþróunarsetur háskólamanna0,7% | 0,7% | 6.650 kr. |
| VIRK starfsendurhæfingarsjóður0,1% | 0,1% | 950 kr. |
| Lífeyrissjóður, mótframlag11,5% | 11,5% | 109.250 kr. |
| Séreign, mótframlag2% | 2% | 19.000 kr. |
| Samtals | 231.990 kr. | |
Útreikningurinn er viðmið byggt á hlutföllum sem birt eru á vef DÍ. Nákvæmar greiðslur ráðast af gildandi kjarasamningi og vali hvers og eins. Það tekur tíma að ávinna sér full réttindi í sjóðum; réttindi úr Sjúkrasjóði fást t.d. eftir 6 mánaða greiðslur, þar af 3 samfellt.
