Yfirlýsing DÍ um illa meðferð á hryssum við blóðtöku
23. nóvember 2021

Dýralæknafélag Íslands (DÍ) fordæmir þá ómannúðlegu meðferð á hrossum sem kemur fram í myndbandi Evrópskra dýravelferðarsamtaka um blóðmerar hér á landi. Harka og ónærgætni sem dýrunum er sýnd er aldrei hægt að réttlæta. Skarkali, ringulreið og sú umgjörð sem sjá má í myndbandinu er einungis til að auka á streitu og hræðslu dýranna og alls ekki til þess fallið að auðvelda rekstur eða frekari meðferð.
Í ljósi umræðunnar og þeirrar gagnrýni sem hefur komið fram á búgreinina vill DÍ hvetja þá aðila sem tengjast blóðmerahaldi, og um leið þá sem taka ákvarðanir um umgjörð og starfsskilyrði greinarinnar, að taka gagnrýna umræðu um meðal annars eftirfarandi þætti:
- Umsvif og stærð búgreinarinnar. Hafa umsvifin aukist það mikið að ekki er hægt að tryggja ásættanlega umgjörð á búunum og nægjanlegt eftirlit í greininni?
- Eru gerðar nægjanlegar kröfur til eigenda um reynslu og þekkingu starfsmanna á búunum þegar kemur að umgengni við dýr og velferð þeirra?
- Er eftirlitið á búunum áhættumiðað, þannig að öflugra eftirlit sé haft með þeim búum þar sem hnökrar eru á framkvæmdinni?
- Er þörf á að endurskoða rammann um greinina enn betur, t.d. fjölda dýra í hóp og fjölda dýra sem hver dýralæknir getur sinnt á hverju tímabili?
Mikilvægi þess að hafa góðan ramma og skýr starfsskilyrði ásamt öflugu eftirliti af hálfu hins opinbera er óumdeilt. Hins vegar skal aldrei horft fram hjá ábyrgð eiganda í slíkum málum. Ábyrgðin og sökin er fyrst og fremst hjá þeim sem eru umráðamenn og eigendur viðkomandi dýra.
Ábyrgð dýralækna sem vinna við blóðtöku úr hryssum er einnig skýr. Þeim ber skylda til að hafa velferð dýranna í fyrirrúmi, leiðbeina eigendum eða stöðva blóðtökuna ef aðbúnaði og framkvæmd er ábótavant og gera Matvælastofnun viðvart. DÍ beinir því til dýralækna að sýna ábyrgð í störfum sínum og grípa inn í aðstæður þegar þess gerist þörf.
Dýralæknir skal hafa vakandi auga með því að farið sé vel með öll dýr, þau séu ekki hrekkt, meidd eða kröftum þeirra og þoli ofboðið.1. grein siðareglna DÍ
Vitundarvakning og umræða um þá óásættanlegu meðferð á dýrum sem sjá má í umræddu myndskeiði er nauðsynleg.
Fyrir hönd stjórnar, Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands



