Lög og reglur um störf dýralækna
Starfsleyfi, lög og reglugerðir sem gilda um dýralækningar á Íslandi og stefna DÍ um notkun og ávísanir lyfja til búfjár.

Starfsleyfi
Þeir einir mega stunda dýralækningar hér á landi sem hlotið hafa leyfi ráðherra samkvæmt reglugerð, að fenginni umsögn yfirdýralæknis. Dýralæknir undirritar eiðstaf og yfirdýralæknir heldur skrá yfir dýralækna sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar.
Eingöngu dýralæknar með leyfi mega framkvæma læknisaðgerðir á dýrum; undanþegnar eru minni háttar aðgerðir og lyfjameðferð í samráði við dýralækni. Dýralækni er einungis heimilt að afhenda eða ávísa lyfseðilsskyldum lyfjum handa dýri þegar hann hefur greint sjúkdóminn.
Lög og reglugerðir
Héraðsdýralæknar
Héraðsdýralæknar hjá Matvælastofnun eru fjórir, hver með sitt umdæmi: Suðvesturumdæmi, Norðvesturumdæmi, Norðausturumdæmi og Suðausturumdæmi. Upplýsingar um hlutverk þeirra og hvernig ná má í þá eru á vef MAST.
Umdæmi á vef MASTLyfjastefna DÍ
Stefna Dýralæknafélags Íslands um notkun og ávísanir lyfja til búfjár. Samþykkt á haustfundi DÍ 24. nóvember 2001.
Markmið
- Hindra að dýraafurðir séu mengaðar lyfjaleifum.
- Hindra myndun ónæmis gegn sýklalyfjum og tryggja þannig notkun þeirra í framtíðinni með því að draga úr lyfjanotkun eins og kostur er.
- Draga úr lyfjamengun náttúrunnar.
- Bæta árangur lyfjameðhöndlunar.
Til að ná markmiðunum skal leggja höfuðáherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir í stað meðhöndlunar.
Vísindaleg rök skulu ávallt liggja til grundvallar ákvörðun um notkun sýklalyfja og val á þeim skal vera markvisst. Penicillín er fyrsti valkostur. Forðast skal breiðvirk lyf og lyf sem frekar valda ónæmi; þau skal eingöngu nota gegn sýklum sem eru ónæmir fyrir penicillíni.
Lágmarkskröfur til dýralækna
- Dýralæknir ber undantekningarlaust ábyrgð á lyfjum sem hann notar og afhendir öðrum.
- Notkun sýklalyfja skal byggja á sjúkdómsgreiningu dýralæknis eftir skoðun á dýrinu.
- Einungis skal nota lyf með viðurkennd MRL-gildi fyrir dýr ætluð til manneldis.
- Á lyfseðil skal skrá dýrategund, einstaklingsnúmer, tilgang, leiðbeiningar og biðtíma afurðanýtingar fyrir egg, mjólk og kjöt, jafnvel þó hann sé enginn.
- Eiginmeðhöndlun án skoðunar er aðeins heimil samkvæmt skriflegum, tímabundnum samningi milli dýralæknis búsins og eiganda.
- Meta skal þörf á ónæmisrannsókn og fylgjast með næmi gegn sníklalyfjum innan hjarða.
Lágmarkskröfur til búfjáreigenda
- Ekki hefja meðhöndlun án sjúkdómsgreiningar dýralæknis, nema samkvæmt samningi um eiginmeðhöndlun.
- Sláturdýr sem hafa verið meðhöndluð með lyfjum skulu vera einstaklingsmerkt.
- Dýralyf skal geyma þar sem börn ná ekki til, aðskilin frá matvælum og sótthreinsiefnum.
- Allar meðhöndlanir skulu skráðar.
