Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Ályktun DÍ vegna umræðu um flatnefja gæludýr

15. nóvember 2021

Dýralæknafélag Íslands (DÍ) fagnar þeirri umræðu sem hefur verið í samfélaginu síðustu misseri um velferð og heilbrigði flatnefja gæludýra.

Umræðan er nauðsynleg til að ræktendur, dýraeigendur og dýralæknar geti í sameiningu tekist á við það stóra verkefni að bæta heilbrigði og líðan þessara dýra. Vinsældir þessara tegunda (e. brachycephalic) hafa farið mjög vaxandi hérlendis, til dæmis ensks og fransks bulldogs og pug.

Geðslag þessara dýra er í flestum tilfellum afar gott, en oft virðist skorta á fræðslu til eigenda um þá fjölmörgu heilsukvilla sem fylgja ýktum útlitseinkennum sem hafa verið ræktuð fram á kostnað heilbrigðis. Hjá evrópskum dýralæknum hefur lengi staðið yfir herferð til að beina athyglinni að þessu velferðarmáli.

Líkamsbygging og útlit dýranna getur leitt til fjölmargra heilsutengdra vandamála sem skerða mjög lífsgæði, þar á meðal:

  • Öndunarörðugleika
  • Tann- og augnvandamála
  • Hryggskekkju sem getur leitt til lömunar eða verkja
  • Síendurtekinna húðsýkinga í húðfellingum
  • Erfiðleika við pörun og got

Mikilvægt er að íslenskir ræktendur séu gagnrýnir á þessi alvarlegu heilsuvandamál og miði ræktunarstarf sitt að því að bæta heilsu dýranna.