Iðgjaldareiknir
Hvað fer í félagsgjald, sjóði BHM og lífeyrissjóð af laununum þínum? Sláðu inn heildarlaun og veldu starfsvettvang.
Félagsgjald DÍ: 8.550 kr. á mánuði
102.600 kr. á ári| Liður | Hlutfall | Á mánuði |
|---|---|---|
| Dregið af þínum launum | ||
| Félagsgjald DÍBHM innheimtir fyrir DÍ0,9% | 0,9% | 8.550 kr. |
| Lífeyrissjóður, iðgjald4% | 4% | 38.000 kr. |
| SéreignarsparnaðurValkvætt4% | 4% | 38.000 kr. |
| Launagreiðandi greiðir til viðbótar | ||
| Styrktarsjóður BHM0,75% | 0,75% | 7.125 kr. |
| Orlofssjóður BHM0,25% | 0,25% | 2.375 kr. |
| Starfsmenntunarsjóður BHM0,22% | 0,22% | 2.090 kr. |
| Starfsþróunarsetur háskólamanna0,7% | 0,7% | 6.650 kr. |
| VIRK starfsendurhæfingarsjóður0,1% | 0,1% | 950 kr. |
| Lífeyrissjóður, mótframlag11,5% | 11,5% | 109.250 kr. |
| Séreign, mótframlag2% | 2% | 19.000 kr. |
| Samtals | 231.990 kr. | |
Útreikningurinn er viðmið byggt á hlutföllum sem birt eru á vef DÍ. Nákvæmar greiðslur ráðast af gildandi kjarasamningi og vali hvers og eins. Það tekur tíma að ávinna sér full réttindi í sjóðum; réttindi úr Sjúkrasjóði fást t.d. eftir 6 mánaða greiðslur, þar af 3 samfellt.
Sjóðirnir sem greitt er í
Samhliða félagsgjaldi í DÍ greiðir launagreiðandi fyrir þig í sjóði BHM. Sjá nánar skilyrði og útlistun á vef BHM.
Fyrir félagsmenn á opinberum vinnumarkaði. Styrkir eða greiðir að hluta líkamsrækt, meðferð á líkama og sál, krabbameinsleit, gleraugu og augnaðgerðir, heyrnartæki, tannviðgerðir, fæðingar- og ættleiðingarstyrk, sjúkradagpeninga, endurhæfingu, dánarbætur, ferðastyrk og annan heilbrigðiskostnað.
Fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði. Styrkir eða greiðir að hluta líkamsrækt, meðferð á sál og líkama, forvarnir, heyrnartæki, fæðingarstyrk, tæknifrjóvgun, sjúkradagpeninga, dánarbætur, starfstengd áföll eða óvænt starfslok og ættleiðingu. Réttindi fást eftir 6 mánaða greiðslur, þar af 3 mánuði samfellt.
Fyrir félagsmenn á opinberum og almennum markaði. Leigir sjóðfélögum orlofshús og íbúðir hér á landi og erlendis og selur flugferðir, hótelgistingu, útilegukort, veiðikort og golfkort á afsláttarkjörum.
Styrkir sjóðfélaga vegna sí- og endurmenntunar sem tengist starfi eða fagsviði: stök námskeið, nám, ráðstefnur og málþing og kynnisferðir.
Fyrir þá sem starfa hjá ríki eða sveitarfélagi, valkvætt á almennum markaði og fyrir sjálfstætt starfandi. Styrkir einstaklinga, stéttarfélög, stofnanir og sveitarfélög vegna starfsþróunar.
Greitt fyrir alla í gegnum innheimtugátt lífeyrissjóðanna. VIRK eflir starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
Launagreiðandi innheimtir 4% af heildarlaunum og greiðir 11,5% mótframlag. Val er um séreignarsparnað: 2–4% af heildarlaunum og 2% mótframlag frá launagreiðanda, samkvæmt samningi við þann sjóð sem þú velur.
