Frá námi í starf
Nýútskrifaður dýralæknir, hvað svo? Hér eru skrefin frá starfsleyfi til félagsaðildar, ásamt því sem DÍ gerir fyrir þig.

Smelltu á númerin til að merkja við skref. Listinn vistast aðeins í þínum vafra.
- Námið
Viðurkennt dýralæknanám
Dýralækningar eru ekki kenndar hér á landi. Ef dýralæknaháskóli í Evrópulandi veitir réttindi til dýralæknastarfa í því landi gildir það almennt innan EES. Nám utan EES metur Dýralæknaráð í hverju tilviki fyrir sig.
- Matvælastofnun
Sækja um starfsleyfi
Sótt er um leyfi til dýralækninga í þjónustugátt Matvælastofnunar. Nám frá dýralæknaskólum er ekki sjálfkrafa viðurkennt hérlendis.
- Matvælastofnun
Viðtal og kennsla í búfjárheilsu
Umsækjandi fer í viðtal hjá yfirdýralækni, eða öðrum dýralækni hjá MAST í umboði hans, og í kennslu í búfjárheilsu til að uppfylla kröfur leyfisins.
- Þú
Kynna þér lög og reglur
Dýralæknum sem hefja störf á Íslandi ber að kynna sér íslensk lög og reglur um dýralækningar. Þeir sem starfa í opinberri þjónustu skulu hafa vald á íslenskri tungu.
- Þú og vinnustaðurinn
Tryggingar
Tryggingar eru oftast í gegnum vinnustaðinn, en hver og einn getur líka keypt þá tryggingu sem hentar.
- Trygging vegna óhapps eða mistaka í starfi
- Berðu saman veikindatryggingu tryggingafélaga við réttindi úr sjúkra- eða styrktarsjóði BHM
- Lyfjastofnun
Lyf og búnaður
Ef þú ætlar að selja lyf þarf að sækja um lyfsöluleyfi hjá Lyfjastofnun. Ekki þarf sérstakt leyfi fyrir lyfjum sem þú notar sjálf(ur) til meðhöndlunar sem hluta af meðferð.
- Lyf fást hjá heildsölum, t.d. Vistor
- Útbúnað má panta í gegnum Vistor eða erlendar síður
- DÍ og vinnuveitandi
Ganga í Dýralæknafélagið
Láttu vinnuveitanda vita að þú viljir vera félagi í DÍ. Þá hefst innheimta félagsgjalds, 0,9% af heildarlaunum, ásamt greiðslum í sjóði BHM. Samhliða hefur þú samband við félagið á dyr@dyr.is.
- DÍ
Fá stimpilinn
Félagið lætur útbúa stimpil með læknanúmeri þínu og nafni ásamt merki félagsins, sem þér er frjálst að nota.
Dýralæknanám
Námið tekur 5½–6½ ár og er talið með erfiðustu háskólanámi á Norðurlöndum. Kynntu þér hvaða skólar eru viðurkenndir áður en þú sækir um.
Algengir skólar íslenskra nema
Kanada og Ástralía
Dýralæknar með starfsleyfi
Á vef Matvælastofnunar er uppfærður listi yfir dýralækna með löggildingu hér á landi.
Listi MASTErlent samstarf
DÍ er aðili að FVE (The Federation of Veterinarians of Europe), EASVO (European Association of State Veterinary Officers) og WVA (World Veterinary Association). Fundir FVE eru haldnir tvisvar á ári.
fve.org