Persónuverndarstefna DÍ
Hvernig Dýralæknafélag Íslands safnar, notar og verndar persónuupplýsingar.
Persónuvernd þín skiptir Dýralæknafélag Íslands máli. Stefnan nær yfir söfnun, notkun, birtingu, flutning og geymslu upplýsinga um þig.
Þú getur skoðað vefinn án þess að gefa upp persónuupplýsingar. Ef þú skilur eftir persónuupplýsingar munum við ekki selja, leigja eða deila þeim með öðrum, nema þeim sem hjálpa okkur að veita þá þjónustu sem þú baðst um.
- Við umsókn um aðild: nafn, kennitala, símanúmer, netfang, vinnustaður og menntun, auk bankaupplýsinga þegar við á.
- Frá vinnuveitanda: sundurliðaðar greiðslur í sjóði og félagsgjöld.
- Við fyrirspurn í gegnum vefinn: nafn, símanúmer og netfang.
- Við skráningu á ráðstefnur og fundi: nafn, kennitala, símanúmer, netfang og vinnustaður.
Til að senda fréttir og upplýsingar um viðburði, viðhorfskannanir og starfaauglýsingar. Þú getur afþakkað póstlistann hvenær sem er með tölvupósti á dyr@dyr.is.
Kennitala er notuð til að staðfesta auðkenni og afgreiða umsóknir þar sem það á við.
DÍ gerir tilteknar upplýsingar aðgengilegar sjóðum BHM til að afgreiða umsóknir, og eftir atvikum þriðja aðila vegna kannana í þágu dýralækninga, t.d. kjarakönnunar BHM. Þriðja aðila ber skylda til að vernda upplýsingarnar. Upplýsingar kunna að vera veittar ef lög eða opinberir aðilar krefjast þess.
Gögn eru geymd í tölvukerfum með takmörkuðum aðgangi, bæði í skýjalausnum Microsoft og hjá innlendum hýsingaraðilum, og afrituð reglulega á dulkóðuðu sniði. Upplýsingar eru varðveittar eins lengi og þarf til að uppfylla stefnuna nema lög krefjist annars.
Þú átt rétt á aðgangi og afriti af gögnum um þig og getur beðið um leiðréttingu eða eyðingu ef félaginu ber ekki skylda til að varðveita þau. Beiðnir sendist á dyr@dyr.is. Framkvæmdastjóri fer yfir fyrirspurnir um persónuvernd. Ef þú sættir þig ekki við svar getur þú beint kvörtun til Persónuverndar.
