Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Kjaramál

Kjarasamningar sem Dýralæknafélag Íslands er aðili að, upplýsingar um kjör og réttindi dýralækna og þá sjóði sem félagsmenn með stéttarfélagsaðild eiga aðild að.

Kýr á grænu túni

Kjarasamningar

Gildandi samningar eru merktir sérstaklega. Eldri samningar eru varðveittir til viðmiðunar.

Hvað gildir um þig?

Veldu starfsvettvang til að sjá gildandi samning, aðild og sjóði.

Hvar starfar þú?

Starfar hjá ríkinu

Kjarasamningur DÍ og ríkisins gildir, auk stofnanasamnings þinnar stofnunar.

Aðild
Fag- og stéttarfélagsaðild. Félagsgjald er 0,9% af heildarlaunum og BHM sér um innheimtuna.
Sjóðir BHM
  • Styrktarsjóður 0,75%
  • Orlofssjóður 0,25%
  • Starfsmenntunarsjóður 0,22%
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7%
Launagreiðandi greiðir, sem hlutfall af heildarlaunum.

Iðgjaldareiknir

Sláðu inn mánaðarlaun og sjáðu félagsgjald, greiðslur í sjóði BHM og lífeyrissjóð.

Opna reiknivélina

Dagpeningar og akstur

Ferðakostnaður erlendis greiðist með dagpeningum sem Ferðakostnaðarnefnd ríkisins ákveður. Kostnaður innanlands greiðist eftir reikningi, en dagpeningar ef um það er samið eða ekki er hægt að leggja fram reikninga. Nefndin ákvarðar einnig akstursgjald.

Upphæðir á vef ráðuneytisins

Orlofssjóður BHM

Félagsmenn með stéttarfélagsaðild geta sótt um orlofshús og íbúðir hérlendis og erlendis og keypt afsláttarbréf fyrir flug, gistingu, útilegukort, veiðikort og golfkort. Innskráning er með rafrænum skilríkjum.

Bókunarvefur Orlofssjóðs