Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Saga Dýralæknafélags Íslands

Saga félagsins er samtvinnuð dýralæknalöggjöfinni og þróun dýralækninga á Íslandi. Brynjólfur Sandholt tók saman árið 2001.

Íslenskir hestar

Föstudaginn þ. 7. september 1934 komu dýralæknarnir á Íslandi, en þeir voru sex talsins, saman til fundar á Hótel Borg í Reykjavík. Segir svo í fundargerðinni að fyrsta mál sem liggi fyrir fundinum sé að stofna félagsskap með dýralæknum landsins.

Úr fyrstu fundargerð félagsins

Tilgangur samkvæmt fyrstu lögunum

  • að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum íslenskra dýralækna,
  • efla samhug og viðkynni stéttarinnar,
  • mæta á opinberum vettvangi fyrir hönd íslenskra dýralækna,
  • auka faglega þekkingu meðlima með fræðsluerindum og umræðum.
Starfandi dýralæknar hér á landi
19401950196019701980199020002010
PDFÁgrip af sögu dýralæknaBrynjólfur Sandholt
  1. 1833

    Fyrsti íslenski dýralæknirinn

    Teitur Finnbogason lýkur prófi frá Dýralæknaskólanum í Kaupmannahöfn. Ekkert dýralæknisembætti var þá til og hann var aldrei á föstum launum.

  2. 1870

    Barist við fjárkláðann

    Snorri Jónsson er ráðinn dýralæknir 1870–1874 til aðstoðar í baráttunni við seinni fjárkláðann.

  3. 1891

    Fyrstu lögin um dýralækna

    Lög nr. 22 frá 2. október kveða á um tvo dýralækna, annan í Suður- og Vesturamti og hinn í Norður- og Austuramti. Fyrra embættið var skipað 1896 og hið síðara 1910. Síðan hefur landið ekki verið dýralæknislaust.

  4. 1934

    Félagið stofnað á Hótel Borg

    Sex dýralæknar landsins koma saman 7. september og stofna Dýralæknafélag Íslands. Fyrsta stjórn: Sigurður E. Hlíðar formaður, Hannes Jónsson og Jón Pálsson.

  5. 1947

    Nútímalegra skipulag

    Fyrstu efnislegu breytingarnar á lögunum frá 1891. Tveimur umdæmum bætt við og einn dýralæknir skal starfa sem sérfræðingur á Keldum.

  6. 1959

    25 ára afmæli

    Starfandi dýralæknar eru 17 talsins, þar af ein kona, sem þótti sérstakt á þeim tíma.

  7. 1970

    Ný dýralæknalög

    Frumvarp sem nefnd DÍ samdi og aðalfundur samþykkti 1969 verður að lögum, m.a. um staðaruppbót og rétt héraðsdýralækna til framhaldsnáms.

  8. 1989

    Rannsóknarsjóður DÍ

    Sjóðurinn verður til við undirritun kjarasamnings við ríkið.

  9. 1998

    Lög nr. 66/1998

    Réttlætismál úr frumvarpi DÍ frá 1969 nær fram: hið opinbera greiðir vitjun umfram 50 km.

  10. 1999

    Eftirlit aðskilið frá praksís

    Héraðsdýralæknaumdæmum fækkað í 13 sem fyrsti áfangi í að aðskilja opinbert eftirlit og þjónustu.

  11. 2010

    Konur í meirihluta

    68 konur eru við dýralæknisstörf, um 57% starfandi dýralækna. Tveir af hverjum þremur nýútskrifuðum eru konur.

  12. 2011

    Sex umdæmi

    Lagabreyting frá 2009 tekur gildi og héraðsdýralæknaumdæmum fækkar í sex.

  13. Í dag

    156 félagsmenn

    Auk fjórtán eftirlaunaþega. Héraðsdýralæknar Matvælastofnunar eru nú fjórir.