Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Ályktun DÍ um bann við lausagöngu katta á Akureyri

5. nóvember 2021

Dýralæknafélag Íslands (DÍ) harmar að bæjarstjórn Akureyrar hafi samþykkt bann við lausagöngu katta í bænum frá 1. janúar 2025.

DÍ þykir sérstakt að gengið sé svona hart til verks í stað þess að framfylgja samþykktum Akureyrarbæjar sem eru í gildi. Líftími katta er að meðaltali 14–18 ár og því eru sólarlagsákvæði um að bannið taki gildi eftir einungis rúm 3 ár allt of stutt. Afar erfitt er að loka kött inni sem er vanur að fara sinna ferða.

Þetta mun setja marga kattaeigendur í erfiða stöðu, þar sem valið gæti jafnvel staðið á milli þess að láta aflífa gæludýrið eða koma því á nýtt heimili utan bæjarins. Kostir þess að umgangast gæludýr eru vel þekktir og gæludýr geta aukið lífsgæði bæði barna og fullorðinna.

Kettinum er eðlislægt að kanna umhverfi sitt og að ganga frjáls veitir honum andlega örvun og minnkar streitu. Utandyra getur hann iðkað náttúrulega hegðun eins og að klóra og merkja. Þó sumir kettir sætti sig við að vera innikettir eru fleiri sem höndla það ekki og innilokun getur leitt til streitu og hegðunarvandamála.

Aðrar leiðir

Engar skýrar vísindalegar sannanir eru fyrir því að lausagöngubann katta hafi jákvæð áhrif á fuglastofna. DÍ telur raunhæfara að taka á vandanum á annan hátt, til dæmis með:

  • Átaki í fækkun villikatta
  • Aukinni fræðslu til eigenda um leiðir til að draga úr veiðigetu, t.d. bjöllum og krögum
  • Útgöngubanni að næturlagi (kl. 17–09) á varptíma fugla

Það er mat Dýralæknafélags Íslands að með banninu sé vegið að eðlislægu atferli kattarins og velferð hans.

Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands