Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Sjóðir og styrkir

Tveir sjóðir eru á vegum DÍ, Vísindasjóður og Rannsóknarsjóður, auk þeirra sjóða BHM sem félagsmenn með stéttarfélagsaðild eiga aðild að.

Lundar á klettasyllu

Vísindasjóður DÍ

Sjóðurinn var stofnaður af Guðbrandi E. Hlíðar til minningar um foreldra sína, Guðrúnu Louisu og Sigurð E. Hlíðar, fyrrverandi yfirdýralækni. Skipulagsskrá sjóðsins var gefin út 22. júlí 1968 og endurskoðuð 24. apríl 1979. Sjóðurinn er eign Dýralæknafélags Íslands og félagar hafa árlega lagt honum til hlutfall af félagsgjöldum sínum.

Styrk má veita íslenskum dýralæknum til framhaldsnáms, til vísindastarfa á dýralæknasviðinu eða sem verðlaun fyrir ritgerðir byggðar á sjálfstæðum rannsóknum.

Hvernig er sótt um?

Umsókn er send á netfangið dyr@dyr.is og henni skal fylgja:

  • afrit af prófskírteini vegna námsgráðunnar sem styrkumsóknin á við, eða
  • staðfesting frá skóla um að nám sé hafið, ef námið tekur 3 ár eða lengur og a.m.k. 60 ECTS er lokið.

Úthlutunarreglur

  • Umsóknir frá félagsmönnum sem hafa verið í DÍ í a.m.k. 12 undangengna mánuði ganga fyrir.
  • Nám til doktorsgráðu (180 ECTS) hlýtur hámarksúthlutun; aðrar gráður samkvæmt fjölda ECTS, þó aldrei minna en 60 ECTS.
  • Hæstu prófgráður hvers umsóknartímabils hafa forgang og heildarúthlutun miðast við ávöxtun sjóðsins árið á undan.
  • Sjóðstjórn ákveður árlega upphæð hámarksstyrks.

Verklagsreglur samþykktar af stjórn 11. nóvember 2020.

Skipulagsskrá

Rannsóknarsjóður DÍ

Rannsóknarsjóður Dýralæknafélags Íslands varð til við undirritun kjarasamnings við ríkið árið 1989. Markmið hans er að auka tækifæri félagsmanna til framhaldsmenntunar, endurmenntunar, rannsókna og þróunarstarfa. Stjórn sjóðsins er skipuð af stjórn DÍ.

Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg greiða fyrir félagsmenn í sjóðinn, 1,5% af föstum dagvinnulaunum. Sumir dýralæknar á almennum markaði hafa komist að sambærilegum samningum. Styrkir miðast við þá upphæð sem lögð er til sjóðsins fyrir hvern félaga, og aðild eiga aðeins þeir sem greitt er fyrir.

Sjóðir BHM

Félagsmenn DÍ með stéttarfélagsaðild eiga aðild að sjóðum Bandalags háskólamanna. Sjóðsaðild getur verið misjöfn eftir starfsvettvangi.