Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Andleg vanlíðan og streita algeng meðal dýralækna

22. júní 2021

Andleg vanlíðan og streita er algeng meðal dýralækna hér á landi samkvæmt könnun sem Dýralæknafélag Íslands gerði meðal félagsmanna sinna. Stóraukið gæludýrahald, óvægin umræða á samfélagsmiðlum, óraunhæfar kröfur viðskiptavina, einmanaleiki, samúðarþreyta og mannekla eru meðal helstu orsakavalda. Könnunin var gerð í samstarfi við Outcome dagana 7.–14. júní og var svarhlutfall 60%.

Álag hefur aukist til muna

Helmingur svarenda taldi álag í starfi vera við þolmörk (8–10) og minnihluti taldi álagið lítið eða í meðallagi (29%). 68% sögðu álagið hafa aukist, þar af 59% mikið eða mjög mikið. Einn af hverjum fimm (21%) sagðist hafa skipt um starf vegna álags á lífsleiðinni.

Niðurstöður könnunar DÍ um álag í starfi

Helstu ástæður aukins álags eru sagðar aukin gæludýraeign landsmanna og auknar og óraunhæfar væntingar viðskiptavina. Framfarir í faginu hafa jafnframt aukið þjónustuframboð dýralækna og krafan um tæknivæðingu og endurmenntun verður sífellt háværari. Nokkur mannekla virðist vera í faginu, sérstaklega á landsbyggðinni.

Heilsufar dýralækna

Erlendar rannsóknir, m.a. bandarískar, breskar og norskar, benda til þess að dýralæknar séu líklegri en aðrar stéttir til að upplifa andlegan heilsubrest. Í könnun DÍ sögðust 75% svarenda finna fyrir streitueinkennum vegna álags, þar af 45% bæði líkamlegum og andlegum. Eftirlitsdýralæknar hafa jafnframt orðið fyrir því að vegið sé að öryggi þeirra í eftirlitsferðum.

Niðurstöður könnunar DÍ um streitueinkenni

Mikilvægt er að gerðar séu frekari rannsóknir á heilsu og starfsumhverfi dýralækna á Íslandi og mörkuð stefna um aukinn stuðning við stéttina.

Sögur dýralækna á Íslandi

Aðalástæða aukins álags er líklega aukin gæludýraeign, meiri kröfur til þjónustu. Svo er verið að taka ákvarðanir um líf og dauða dýra sem eru orðin að fjölskyldumeðlimum.
Eru mikið einir á vakt án félagslegs stuðnings vinnufélaga … það stendur enginn undir kröfum um 24/7 vaktir til lengdar án mikils stuðnings frá fjölskyldu og kollegum.