Fag- og stéttarfélag dýralækna frá 1934

Aðalfundur DÍ 13. mars 2021

26. febrúar 2021

DÍ boðar til aðalfundar laugardaginn 13. mars 2021 kl. 10:00–14:00 á Teams. Þó fundurinn verði fyrst og fremst fjarfundur verður einnig hægt að sitja hann í húsnæði Distica, Hörgatúni 2, Garðabæ. Húsið opnar kl. 9:30.

Áður en hefðbundin aðalfundarstörf fara fram mun VÁ-teymi Matvælastofnunar kynna viðbragðsáætlun vegna alvarlegra dýrasjúkdóma. Félagar eru hvattir til að bjóða fram krafta sína til trúnaðarstarfa á vegum félagsins.

Dagskrá

  • 10:00 Viðbragðsáætlun Matvælastofnunar kynnt af VÁ-teymi MAST
  • 11:15 Aðalfundur, hefðbundin aðalfundarstörf
  • Skýrsla stjórnar
  • Reikningar félagsins, Rannsóknarsjóðs DÍ og Vísindasjóðs DÍ
  • Félagsgjöld ákveðin
  • Þóknun til stjórnar ákveðin
  • Skýrslur nefnda
  • Kosningar í stjórn, nefndir og ráð
  • Önnur mál

Hlökkum til að sjá og skjá sem flest.

Stjórnin