Siðareglur Dýralæknafélags Íslands
Faglegt sjálfstæði, traust, heiðarleiki, heilindi og virðing. Ábyrgð dýralækna gagnvart dýrum, viðskiptavinum, samstarfsfólki, stjórnvöldum, samfélaginu og umhverfinu.

Inngangur
Siðareglurnar eru byggðar á siðareglum Evrópska dýralæknafélagsins (FVE) og eiga við öll dýralæknastörf félagsmanna DÍ, ekki einungis þeirra sem starfa við almennar dýralækningar. Þær fjalla um hvaða gildi skulu viðhöfð og skilgreina góða starfshætti, en ekki hvað telst faglega rétt dýralæknastarfsemi.
Tilgangurinn er að tryggja að félagar í DÍ veiti hágæða þjónustu, í þágu dýravelferðar, lýðheilsu og umhverfisins, sem viðskiptavinir og samfélagið allt geta treyst.
Dýralæknar skulu virða dýr sem skyni gæddar verur.Úr grein 2.1, Ábyrgð gagnvart dýrum
Frelsin fimm
Dýralæknar skulu stuðla að og viðhalda velferð dýra sem þeir bera ábyrgð á, með hliðsjón af frelsunum fimm. Dýr skulu vera:
Laus við vanlíðan, hungur og þorsta
Laus við ótta og þjáningu
Laus við sársauka og meiðsli
Laus við sjúkdóma
Fær um að sýna eðlilegt atferli
1. Meginreglur
1.1 Hæfni og fagmennska
Dýralæknar skulu starfa af heiðarleika og í samræmi við bestu fagþekkingu. Þeir skulu viðhalda eigin þekkingu, efla færni sína á sviði dýralækninga og starfa í samræmi við faglega hæfni sína.
1.2 Sjálfstæði og hlutleysi
Dýralæknar skulu beita sjálfstæðri og góðri faglegri dómgreind, taka mið af aðstæðum og hvorki láta persónulega hagsmuni né utanaðkomandi þrýsting hafa áhrif á ákvörðunartöku. Viðskiptavinir eiga rétt á óhlutdrægum, sjálfstæðum og faglegum ráðleggingum.
1.3 Heiðarleiki og trúverðugleiki
Dýralæknar skulu sýna kurteisi, heiðarleika og heilindi gagnvart viðskiptavinum og öðrum, þar með talið faglegum samstarfsmönnum. Þeir mega ekki taka þátt í háttsemi sem getur skaðað orðspor stéttarinnar eða grafið undan trausti almennings.
1.4 Faglegur trúnaður
Dýralæknar skulu gæta fyllsta trúnaðar í öllum samskiptum við viðskiptavini, nema lög eða almannahagsmunir krefjist uppljóstrunar, t.d. vegna dýraheilsu, dýravelferðar eða lýðheilsu. Sé þess kostur skal leita upplýsts samþykkis áður en trúnaðarupplýsingar eru veittar.
1.5 Ábyrgð og tryggingar
Dýralæknar skulu tryggja að viðskiptavinir geti fengið viðeigandi bætur ef tjón verður vegna mistaka eða yfirsjónar við veitingu þjónustu. Þeir skulu því hafa virka ábyrgðartryggingu eða sambærilega tryggingu.
2. Sértæk ákvæði
2.2 Ábyrgð gagnvart viðskiptavinum
- Dýralæknar skulu virða þarfir og óskir viðskiptavina sinna svo framarlega sem þær samræmast siðareglunum og landslögum.
- Dýralæknar skulu ekki mismuna vegna kynþáttar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, fötlunar, hjúskaparstöðu eða kynhneigðar.
- Dýralæknar skulu, eins og unnt er, afla upplýsts samþykkis viðskiptavinar áður en meðferð eða aðgerðir eru framkvæmdar.
- Dýralæknar mega upplýsa almenning um starfsemi sína. Upplýsingarnar skulu vera réttar, gagnsæjar og sannar.
2.3 Ábyrgð gagnvart öðrum dýralæknum
- Dýralæknar skulu virða réttindi og hagsmuni annarra dýralækna og starfa af sanngirni.
- Þegar dýralæknir vísar viðskiptavini til annars dýralæknis skal hann fyrst hafa samband við þann dýralækni, fá samþykki hans og miðla öllum viðeigandi upplýsingum.
- Dýralæknar skulu tryggja áreiðanleika allra vottorða sem þeir eru ábyrgir fyrir.
2.4 Ábyrgð gagnvart starfsfólki
- Dýralæknar skulu fylgja lögum um heilbrigði og öryggi starfsfólks síns og gera allar raunhæfar ráðstafanir til að tryggja velferð þess.
- Þeir skulu vera sanngjarnir gagnvart starfsfólki sínu og tryggja að það fái laun í samræmi við gildandi kjarasamninga.
- Dýralæknar skulu styðja starfsfólk sitt til að auka faglega og tæknilega þekkingu sína.
2.5 Ábyrgð gagnvart stjórnvöldum
- Dýralæknar skulu virða lög sem lúta að starfsemi þeirra og viðhalda góðum samskiptum við viðeigandi stofnanir.
- Dýralæknar sem starfa fyrir stjórnvöld skulu tryggja að engir hagsmunaárekstrar hljótist af og ekki misnota stöðu sína.
2.6 Samfélagsleg ábyrgð
- Dýralæknar skulu fylgjast með lögum sem varða lýðheilsu, dýraheilbrigði, dýravelferð og umhverfisvernd.
- Þeir skulu tilkynna um grun um tilkynningarskyldan sjúkdóm og illa meðferð dýra til viðeigandi stjórnvalds.
- Stafræn dýralæknaþjónusta skal aðeins taka til bráðabirgðaskoðunar og ráðgjafar, og dýralæknirinn er að fullu ábyrgur fyrir umfangi og gæðum hennar.
2.7 Ábyrg lyfjanotkun
- Dýralæknar skulu uppfylla skyldur sínar varðandi skráningu, ávísun, geymslu, notkun, birgðahald og förgun dýralyfja.
- Þeir skulu vera sérstaklega meðvitaðir um áhrif dýralyfjanotkunar á sambærileg lyf í mönnum, sérstaklega sýklalyf, og mögulega þróun ónæmis.
2.8 Umhverfisleg ábyrgð
- Dýralæknar skulu þekkja og fylgja lögum um umhverfisvernd og taka mið af umhverfislegum og samfélagslegum áhrifum starfa sinna.
3. Ráðleggingar og nánari útfærslur
3.1 Gagnvart dýrum
- Nota aðferðir sem tryggja áreiðanlega greiningu og meðferð og valda lágmarks streitu.
- Taka aðeins að sér verkefni sem samrýmast eigin þekkingu og færni, nema í bráðatilvikum.
- Lina sársauka og þjáningu eins og auðið er. Ef ástand er ómeðhöndlanlegt skal ræða mannúðlega aflífun við eiganda.
- Ef einkenni samræmast ekki sögu og gætu bent til brota á lögum um velferð dýra skal tilkynna grun til viðeigandi yfirvalda.
3.2 Gagnvart viðskiptavinum
- Veita fagleg ráð á skiljanlegan hátt og upplýsa um ástand dýrsins, tillögu að meðferð, kostnað og líklega útkomu.
- Veita upplýsingar um aðgengi að neyðarþjónustu eftir þörfum.
- Bregðast við kvörtunum og athugasemdum með skjótum, kurteisum og fullnægjandi hætti.
3.3 Gagnvart öðrum dýralæknum
- Viðhafa ekki ósanngjarna gagnrýni eða reyna að veikja traust á öðrum dýralæknum.
- Vísa viðskiptavinum til hæfari dýralæknis ef þeir geta ekki sjálfir veitt þá þjónustu sem þörf er fyrir.
3.6 Samfélagsleg ábyrgð
- Upplýsa dýraeigendur um skyldur þeirra varðandi lýðheilsu, dýraheilbrigði og dýravelferð.
- Ráðleggja um leiðir til að draga úr áhættu af sýklum sem borist geta milli manna og dýra, matarbornum sýkingum, lyfjaleifum og sýklalyfjaónæmi.
3.8 Umhverfisleg ábyrgð
- Halda mengun við notkun hreinsiefna, lyfja og annarra efna í lágmarki.
- Flokka úrgang, sérstaklega sóttmengaðan úrgang og lyfjaleifar, og skila á viðeigandi endurvinnslustaði.
Siðanefnd DÍ
Í siðanefnd sitja tveir félagsmenn kosnir af aðalfundi til þriggja ára í senn og einn fulltrúi sem stjórn skipar samkvæmt tillögu Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hver sem er getur sent siðanefnd ábendingu ef hann telur siðareglurnar hafa verið brotnar.
Nefndin aflar upplýsinga frá öllum aðilum og kveður upp úrskurð innan þriggja mánaða. Telji hún brot hafa átt sér stað kveður hún á um hvort það sé ámælisvert eða alvarlegt. Alvarlegt brot getur varðað brottvísun úr félaginu.
Siðanefnd: Auður Arnþórsdóttir formaður (varamaður Gunnar Örn Guðmundsson), Kristrún Helga Kristþórsdóttir (varamaður Daníel Haraldsson) og Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki við HÍ.
Senda ábendingu til siðanefndar