Félagsfundur vegna Stofnunar atvinnuveganna
24. september 2026

Þriðjudaginn 22. september boðuðu Dýralæknafélag Íslands, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga og Viska til sameiginlegs félagsfundar með starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita.
Markmið fundarins var að fá skýra mynd af þeim álitaefnum sem helst brenna á starfsfólki vegna fyrirhugaðra breytinga. Jafnframt var markmiðið að tryggja að sjónarmið starfsfólks verði sett fram með sameiginlegum og afdráttarlausum hætti gagnvart atvinnuvegaráðuneytinu.
Áskorun til atvinnuvegaráðherra
Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram, án frekari tafa og eigi síðar en 1. október 2026, opinbera og skuldbindandi tímalínu um stofnun Stofnunar atvinnuveganna. Jafnframt verði starfsfólki veitt skrifleg og ótvíræð svör um framtíðarstörf, starfsstöðvar, kjör, forgangsrétt og varðveislu áunninna réttinda áður en þess er krafist að það taki ákvörðun um framtíð sína í starfi.
Fundurinn telur með öllu óásættanlegt að starfsfólk sé látið búa áfram við óvissu vegna tafa og skorts á upplýsingum.
Áskorunin var samþykkt á félagsfundi starfsfólks 22. september 2026, sem stéttarfélögin Dýralæknafélag Íslands, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga og Viska boðuðu.
Um 120 félagsmenn mættu á fundinn, bæði í sal Visku í Borgartúni og í fjarfundi, og sköpuðust góðar umræður um þau málefni sem tekin voru fyrir.



